Meira en bara gervigreind.
Betri þjónusta fyrir sjúklinga.
dikt.is er ekki bara tól fyrir lækna til að spara tíma. Það er bylting í aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Engin biðröð, engin símafælni og skilningur á yfir 70 tungumálum.
Framtíðin í móttöku
Af hverju að velja AI ritara?
- Talar yfir 70 tungumál
Með því að samtvinna nýjustu málhæfnislíkön Google og ElevenLabs Scribe, getur ritarinn okkar talað og skilið reiprennandi pólsku, ensku, spænsku og tugi annarra tungumála. Þetta eyðir tungumálaörðugleikum, gerir ferðamönnum og innflytjendum kleift að tala á sínu móðurmáli, en læknirinn fær alltaf fullkomna upplýsingagjöf á íslensku.
- Engin biðröð, opin 24/7
Sjúklingar þurfa aldrei aftur að sitja á bið í margar mínútur. Ritarinn svarar við fyrsta hring, jafnvel klukkan 08:00 á mánudagsmorgni þegar álagið er sem mest. Sjúklingar geta hringt um helgar eða að kvöldi til og afgreitt erindi sín vandræðalaust, án nokkurrar símafælni.
- Ró í daginn fyrir lækninn
Fyrir lækna þýðir þetta meiri tíma fyrir það sem skiptir máli. Öll símtöl eru greind á brotabroti úr sekúndu. Læknirinn fær nákvæman, tilbúinn útdrátt til að setja beint í sjúkraskrá (Sögu), og rútínuverkefni eins og tímabókanir eða einfaldar lyfjaendurnýjanir verða fullsjálfvirk.
- Trúnó um miðja nótt
Stundum er auðveldast að opna sig um það sem er erfitt þegar allt er hljótt. Sjúklingar eiga oft auðveldara með að tala á næturnar. Ritarinn virkar sem hlutlaus spegill — hann hlustar af þolinmæði á 'trúnó' sjúklingsins, hjálpar honum að koma orðum að vanlíðan án þess að dæma, og greinir síðan klínísk aðalatriði frá tilfinningunum svo læknirinn fái skýra, faglega mynd næsta morgun.
Staðfestur ávinningur í Bandaríkjunum
Nýjustu rannsóknir (2024-2025) sýna að gervigreindarritarar eru að umbylta upplifun sjúklinga og draga verulega úr álagi á heilbrigðisstarfsfólk.
- Sjúklinga styðja AI ef það þýðir meiri tíma fyrir samskipti augliti til auglitis við lækninn sinn.
- 57%
- Meðal tímasparnaður lækna á dag við skráningu, sem dregur verulega úr vinnu á kvöldin.
- 2.5 klst
- Aukin ánægja sjúklinga þar sem biðtími á síma hverfur og erindi leysast samstundis.
- 15-56%
- Fækkun á sjúklingum sem mæta ekki (no-shows) vegna snjallra áminninga og auðveldrar bókunar.
- 20%